19.9.2008 | 22:51
byrjuð að blogga
Jæja mín bara byrjuð aftur að blogga. Ættla að reina það að minsta kosti:) Ættlaði mér að vera bara með facebook síðu en það er allt of flókið fyrir mig hehe. En af okkur fjölskyldunni er allt gott að frétta. Fyrir þá sem ekki vita þá fluttum við upp á völl í endan síðasta mánaðar og erum búinn að selja íbúðina okkar. Ég er ekkert smá ánægð hélt það myndi adrei takast í þessari helff... verðbólgu.
Heiðar er líka byrjaður á leikskóla og líkar það alveg rosalega vel. Hann er á sama leikskóla og ég er að vinna. voðalega þægilegt að fara bara á einn stað á morgnanna. Hann er rosalega duglegur og er alveg sama þó svo að hann mæti mér einhverstaðar á göngonum. Hann kemur bara og gefur mér koss eða sendir mér fingur koss og heldur svo áframm sinni leið með strákonum :) Hann er orðinn mikill rennibrauta og hoppu kall. Um leið og hann vaknar á morgnanna segir hann "mamma renna" og vill komast út að renna. Svo var hann að fatta það að hoppa niður af borði og stólum og núna er hann hoppandi allan daginn og gefandi mömmu sinni svona nett hjartaáfall í leiðinni hehe
Hérna er littli kúturinn að mála áleikskólanum :D
Hér er hann í göngutúr með vinum sínum um skólann :)
En ættli ég láti þetta ekki bara duga í bili. Ég skrifa meira næst:)
kveðja Jara
Athugasemdir
.............er bara að dást að nafninu þínu
Hólmdís Hjartardóttir, 22.9.2008 kl. 03:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.