Blogg

Jæja ég er ekki alveg að standa mig í þessu blogg dæmi. En ég ættla að fara að standa mig betur J Hef heldur ekki verið dugleg að setja inn á síðna hans Heiðar en er að spá í að setja bara meir inn af myndum hérna í staðin. Það er ósköp lítið að frétta af okkur,lífið gengur bara sinn vana gang hérna á skógarbrutini J Það er frekar mikið að gera í skólanum, endalaus verkefni og firilestrar. Við fluttum fyrilestur um hreyfiþroska barna núna í byrjun nóvember og fengum 9,5 fyrir hann :D Svo erum við að fara að vera með annan fyrilestur á miðvikudaginn. Það verður ekkert smá gott að komast í smá jólafrí J við erum búin að skreyta pínu lítið hjá okkur. Settum slöngu á svalirnar og ljós í gluggan hjá Heiðari. Hann er alveg heillaður yfir öllum þessum ljósum úti um allan bæJ Það stittist nú óðum í að littli guttin okkar verði 2 ára , bara 16 dagar þangað til :D Ég trúi ekki hvað hann er orðin stór, þetta er allt of fljótt að líða. Hann verður farin að heiman áður en maður veit af hehe. En ættli ég hafi þetta ekki ágæt í bili, ég ættla ekki að láta líða svona langt á milli næst þegar ég blogga J

 

Ættla að enda þetta með nokkrum myndum af gullmolanum okkar á leikskólanum J

mmynd

Hérna er hann að reyna að standa á höndum eins og stóru stelpurnar sem voru í heimsókn á kjarnanum hans :D

mmynd

Hérna er hann með Hódda vini sínumJ Svo mikklar dúllur!!

Kveðja Jara


Mikið að gera...

úff það er búið að vera svooooooo mikið að gera hjá mér síðustu tvær vikur. Það er bara ekki búin að vera neinn tími til þess að blogga. Ég er búin að vera á fulu að læra, var að gera fyrirlestur með Heike og Steinunni í síðustu viku og svo var hjallastefnu raðstefnan á föstudeginum í siðustu viku, það var aveg rosalega gaman. Eiginlega skemtilegra en ég bjóst við. Við fórum í eitthvert dans-hláturs jóga sem að var bara það findasta í heimi. Ég dó úr hátri. Svo var geðveikt góðir matur um kvöldið. við fengum sjávarrétti í forrétt og matvanda ég, smakkaði bara allt saman og fanst það bara nokkuð gott. Svo var æðislegur kjúkklingur í aðalrétt. En ég missti af eftirrétinum því að við vorum nokkrar upp á herbergi að skemta okkur og fá okkur aðeins að drekka :)

Síðasta vika er svo búin að fara í meiri lærdóm og æfingar öl kvöld fyrir hæfileika keppni leikskólanna. sem að var svo á föstudaginn. það var rosalega gaman en ég varð einum of drukkin og fór snemma heimBlush Við vorum með kúreka þema og vorum gleði kúreka konur LoL Við tókum lagið working 9-5 með Dolly Parton og breittum textanum. Hann var ansi flottur, fjallaði um það að við værum að vinna á næturnar að laða að okkur karla og ættluðum að strjúka þá,kyssa dansa og smææææla. Man hann samt ekki aveg. Svo vorum við allar með bleika kúreka hatta og nokkrar með sokkabönd með rauðum blikkandi ljósum Kissing En svo á laugardaginn var skóli klukkan 10 um morguninn. Ég var ekki alveg að meika það að vakna ég var svo ógeðslega þunnPinch en ég fór samt. Við fluttum svo fyrirlesturinn okkar sem að gekk bara ágætlega. á laugardeginnum lauk svo áfanganum sem að við vorum í lei-103. þanig að ég er búin með 10 einingar núna frá því í ágúst :) Ég er ekkert smá ánægð með það. Mér hefur ekki gengið svona vel í skóla lengi, þetta fyrirkomuag er að henta mér ótrúlega vel.  En núna tekur bara næsti áfangi við og endar hann líka með fyrirlestrum í byrjun nóvember. Svo það verður ekkert minna að gera hjá manni, en það er í góðu lagi. :) En núna ættla ég að fara að hætta þessu áður en að þetta verður svo langt að engin nenni að lesa þetta hehe

p.s. það eru komnar inn fullt af myndum frá hjalastefnu ráðstefnunni og hæfileikakeppninni.

kveðja Jara


Mánudagur

úff helgarnar eru allt of fljótar að líða, bara strax kominn mánudagur. Við fjölskyldan höfðum það bara gott um helgina. Heiðar reyndar búinn að vera með 39,5 stiga hita síðan á fimmtudag en samt frekar hress. Bara fúll yfir að meiga ekki fara út. Við fórum með hann til læknis um helgina og hann var kominn með eyrnabólgu í annað eyrað og veiru sýkingu í lungun litla greyið. Hann fékk sýklalyf og við eigum að stækka asma skammtana hans. Hann er reyndar allur að hressast núnaSmile

Selja og Steini komu til okkar á laugardagskvöldið og við elduðum humar. Eða Selja og Ægir elduðum og ég og Steini horfðum á. Við höfðum aldrei smakkað humar áður. Þetta var ekkert smá flott hjá þeim. En matargikkurinn ég fannst humarinn ekki góður :l og ekki steina heldur svo að það endaði með því að við tvö pöntuðum okkur pizzu. Ægir og Selju til mikillar gleði því þá var meira handa þeim. Svo vorum við með vöfflur, rjóma og mars sósu í eftirrétt. ummm það var geggjað gott. Svo var bara haft það gott fyrir framan imbann.

ætli ég hafi þetta ekki bara gott í bili blogga meira seina:)

kveðja Jara


byrjuð að blogga

Jæja mín bara byrjuð aftur að blogga. Ættla að reina það að minsta kosti:) Ættlaði mér að vera bara með facebook síðu en það er allt of flókið fyrir mig hehe. En af okkur fjölskyldunni er allt gott að frétta. Fyrir þá sem ekki vita þá fluttum við upp á völl í endan síðasta mánaðar og erum búinn að selja íbúðina okkar. Ég er ekkert smá ánægð hélt það myndi adrei takast í þessari helff... verðbólgu.

Heiðar er líka byrjaður á leikskóla og líkar það alveg rosalega vel. Hann er á sama leikskóla og ég er að vinna. voðalega þægilegt að fara bara á einn stað á morgnanna. Hann er rosalega duglegur og er alveg sama þó svo að hann mæti mér einhverstaðar á göngonum. Hann kemur bara og gefur mér koss eða sendir mér fingur koss og heldur svo áframm sinni leið með strákonum :) Hann er orðinn mikill rennibrauta og hoppu kall. Um leið og hann vaknar á morgnanna segir hann "mamma renna" og vill komast út að renna. Svo var hann að fatta það að hoppa niður af borði og stólum og núna er hann hoppandi allan daginn og gefandi mömmu sinni svona nett hjartaáfall í leiðinni hehe

Hérna er littli kúturinn að mála áleikskólanum :D

 

Hér er hann í göngutúr með vinum sínum um skólann :)

 En ættli ég láti þetta ekki bara duga í bili. Ég skrifa meira næst:)

kveðja Jara


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband